30/10/2024
Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2024
Festi birtir uppgjör sitt fyrir 3. ársfjórðung 2024 eftir lokun markaða miðvikudaginn 30. október 2024.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 31. október 2024 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint í spilaranum hér að neðan. Þáttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan að fundi stendur því að senda tölvupóst á netfangið fjarfestatengsl@festi.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Ef streymi virkar ekki skal prófa að endurhlaða síðunni.